Hæ!

Hvað ætlarðu að spila í dag?

56 leikir · krossgátur, orðaleikir, þrautir og spil á íslensku

Lundakot

Lundakot

Heimili Lunda · byggðu það upp fyrir pálmana

▸
Klæddu Lunda

Klæddu Lunda

Búningaskápurinn · húfur og flíkur fyrir pálmana

▸
Fræðsluleikir Skólagreinar og tungumál

Hvað er á Kokomo?

Kokomo er íslenskur leikjavefur með 56 leiki: krossgátur, orðaleiki, þrautir og spil. Í 38 þeirra birtist ný þraut á hverjum degi og hún er sú sama fyrir alla, svo það er hægt að bera sig saman við vini sína. Krossgátubankinn geymir 769 gátur í fjórum þyngdum, frá barnagátu upp í erfiða, og í safninu bíða 3.235 liðnar þrautir sem má spila aftur nákvæmlega eins og þær birtust á sínum degi.

Orðaleikirnir byggja á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, svo beygingarmyndir gilda alls staðar þar sem þær eiga við. Fræðsluleikirnir eru sniðnir að aðalnámskrá, allt frá 8. bekk upp í framhaldsskóla, og stafsetningarþrautin ein á 1.159 æfingar sem hægt er að æfa eins lengi og maður vill, ekki bara þraut dagsins. Vísbendingar og orðskýringar koma úr Íslenskri nútímamálsorðabók. Allt er ókeypis. Aðgangur er valfrjáls og geymir framvinduna þína milli tækja.