Fleiri leikir
Síðast uppfært .
Allir stafirnir eru þegar á borðinu og aðeins stöður þeirra eru vitlausar, svo þú bætir engu við heldur skiptir stöfum um sæti. Víxlarnir eru fimmtán og stjörnurnar ráðast af því hve marga þú notar: þrjár stjörnur fyrir tíu víxl eða færri, tvær fyrir ellefu til þrettán og ein eftir það. Klárist víxlarnir án þess að krossinn gangi upp er þrautin töpuð.
Litirnir vinna eins og í Orðagiski. Grænn stafur er kominn á réttan stað og á ekki að hreyfast aftur. Gulur stafur á heima í orðinu sem hann liggur í, bara annars staðar. Stafur án litar á hvergi heima í því orði og þarf að fara í annað. Sex orð liggja í krossi, þrjú lárétt og þrjú lóðrétt, og reitirnir þar sem þau skerast bera staf sem þarf að ganga upp í báðar áttir. Bankinn geymir 500 þrautir og ein birtist á dag.