Orðagisk: Wordle á íslensku
Orðagisk er ókeypis íslensk útgáfa af Wordle. Þú giskar á fimm stafa íslenskt orð í sex tilraunum. Grænn stafur er réttur á réttum stað, gulur er í orðinu en á röngum stað, og grár er ekki í orðinu. Ný gáta birtist á hverjum degi og allir spila sömu þraut. Hægt er að deila niðurstöðu með lituðu rúðuneti án þess að ljóstra svarinu.
Hvaðan koma orðin í Orðagiski?
Lausnarorðin eru íslensk fimm stafa orð, eitt valið fyrir hvern dag, og allir fá sama orðið sama daginn. Ágiskanir eru bornar við lista með 27.301 fimm stafa orðmynd úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, svo beygingarmyndir og sjaldgæfari orð teljast gild þótt þau séu ekki lausn dagsins.
Íslensku sérstafirnir eru sjálfstæðir stafir í leiknum. Á er ekki A og Ý er ekki Y, þannig að grár A-reitur segir ekkert um hvort Á sé í orðinu. Þetta er stærsti munurinn á Orðagiski og enska Wordle: sérhljóðin eru miklu fleiri og byrjunarorð sem virka vel á ensku gagnast illa hér. Komi sami stafur tvisvar fyrir í ágiskun en aðeins einu sinni í lausninni lýsist annar þeirra en hinn verður grár. Tilraunirnar eru sex, þrautin geymist ef þú lokar síðunni í miðjum klíðum, og hún opnast aftur á sama stað þegar þú kemur til baka sama dag.