Orðasalat – íslenskur orðaleitarleikur
Orðasalat er daglegur íslenskur orðaleitarleikur þar sem þú finnur falin orð í stafasalati eftir ákveðnu þema. Smelltu og dragðu yfir stafi sem liggja saman – lárétt, lóðrétt eða á ská, bæði áfram og afturábak. Ný gáta birtist á hverjum degi og leikurinn mælir hversu hratt þú finnur öll orðin.
Hvernig eru orðin falin í orðasalatinu?
Hvert salat byggist á einu þema og öll földu orðin tilheyra því. Bankinn geymir 170 salöt og eitt birtist á dag. Orðin geta legið í allar átta áttir, lárétt, lóðrétt og á ská, bæði áfram og afturábak, og sami stafur getur tilheyrt fleiri en einu orði.
Þú velur orð með því að draga yfir stafi sem liggja saman í beinni línu. Rétt orð litast í rúðunni og strikast af þemalistanum. Íslensku sérstafirnir eru sjálfstæðir stafir í salatinu, svo orð með Ö finnst ekki með því að leita að O og Á kemur ekki í staðinn fyrir A. Löngu orðin eru yfirleitt auðveldust í byrjun af því að þau skera sig úr, og þegar þau eru fundin þrengist svæðið sem hin geta falið sig á. Tíminn er mældur frá fyrsta drætti og hægt er að deila honum þegar salatið er tómt.