← Kokomo

Fjórgisk

0/4 leyst
0:00

Fleiri leikir

Orðagisk Tengjur Súdoku Mahjong

Síðast uppfært .

Hvernig er Fjórgisk ólíkt Orðagiski?

Í Fjórgiski leysir þú fjögur fimm stafa orð samtímis og hefur níu tilraunir í allt. Hver ágiskun gildir á öll fjögur borðin í einu, svo orð sem gagnast lítið á einu borði getur opnað annað. Borð sem leysist frýs og bíður á meðan þú klárar hin.

Reikningsdæmið er annað en í Orðagiski. Þar hefurðu sex tilraunir á eitt orð, hér níu á fjögur, svo þú hefur ekki efni á að eyða mörgum ágiskunum í að þreifa fyrir þér. Fyrstu tvær eða þrjár ágiskanirnar borgar sig að velja með ólíkum stöfum til að fá sem mest út úr þeim á öllum borðum í einu. Ágiskanir eru bornar við sama lista og í Orðagiski, 27.301 fimm stafa orðmynd úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. Ný þraut birtist á hverjum degi og hún er sú sama fyrir alla.

Algengar spurningar

Hvað er Fjórgisk?
Fjórgisk er íslensk útgáfa af Quordle á kokomo.is. Þú leysir fjögur fimm stafa orð samtímis í níu tilraunum. Ný þraut birtist á hverjum degi, sú sama fyrir alla, og leikurinn er ókeypis.
Hvernig spila ég Fjórgisk?
Hver ágiskun gildir á öll fjögur borðin í einu. Grænn reitur þýðir að stafurinn er réttur og á réttum stað, gulur að hann er í orðinu en á röngum stað og svartur að hann er ekki í orðinu. Borð sem þú leysir frýs og verður grænmerkt.