Síðast uppfært .
Hvers konar villur leynast í málsgreininni?
Villan er alltaf ein og hún er alltaf málfarsvilla en ekki innsláttarvilla. Í bankanum eru 182 málsgreinar og villurnar skiptast í fimm flokka: röng beyging í 43 þeirra, röng forsetning í 36, rangt fall í 36, röng orðaröð í 35 og rangur háttur á sögn í 32. Málsgreinarnar eru frumsamdar fyrir Kokomo.
Þegar þú finnur villuna færðu regluna útskýrða á mannamáli, ekki bara rétta svarið. Það er tilgangurinn: rétt föll og forsetningar lærast af því að sjá hvað fór úrskeiðis og hvers vegna. Giskirðu á saklaust orð strikast það út og þú heldur áfram, svo útilokun er hluti af leiknum. Í æfingahamnum geturðu tekið fleiri málsgreinar en þá einu sem er í boði á dag. Vísbending kostar fimm pálma og fækkar orðunum sem koma til greina í stað þess að gefa svarið.
Algengar spurningar
- Hvað eru Villuveiðar?
- Villuveiðar er dagleg málfarsþraut á kokomo.is. Í málsgrein dagsins leynist nákvæmlega ein villa og þitt er að finna hana. Þegar villan finnst færðu regluna útskýrða. Málsgreinarnar eru frumsamdar fyrir Kokomo og leikurinn er ókeypis.
- Hvernig spila ég Villuveiðar?
- Ýttu á orðið sem þér finnst rangt. Villan getur verið rangt fall, röng forsetning, röng beyging, röng orðaröð eða rangur háttur á sögn. Giskirðu á saklaust orð strikast það út og þú reynir aftur. Vísbending kostar fimm pálma og fækkar orðunum sem koma til greina.