← Kokomo

Dýflissan

20/20 3 0 0 1. stig
Örvatakkar hreyfa · gakktu á kvikindi til að slá · smelltu á fjarlægan reit til að ganga þangað · smelltu á kvikindi til að skoða það · bil = bíða

Síðast uppfært .

Hvað er í Dýflissunni?

Dýflissan er fimm hæðir djúp og hver hæð hefur sinn svip: Fjaran, Göngin, Urðin, Dysin og loks Bælið þar sem Nátttröllið sefur. Völundarhúsið er það sama hjá öllum þann daginn, svo það er hægt að bera ferðir saman. Þú gengur á kvikindi til að slá þau, hvert fellt kvikindi gefur reynslu og þú styrkist stig af stigi.

Kvikindin fjórtán eru öll úr íslenskri þjóðtrú: fjörulalli, skoffín, púki, Móri, Skotta, nykur, urðarköttur, útilegumaður, draugur, tilberi, skuggabaldur, uppvakningur, skessa og Nátttröllið sjálft. Á leiðinni finnurðu vopn, brynjur, kleinur og dularfulla drykki, og einhvers staðar liggur lykillinn að bæli tröllsins. Fellirðu það rennur upp dagur og fjársjóðurinn er þinn. Deyirðu er ferðin búin, en þú mátt reyna aftur frá byrjun og kortið sem þú kannaðir helst. Vísbending sýnir kort hæðarinnar og kostar fimm pálma.