Lundi heilsar þér 🌴
Smá um mig og lundann.
Kokomo er áhugamál sem ég dútla við í frítímanum. Ég hef gaman af orðum og þrautum og langaði að eiga stað þar sem hægt er að spila svona leiki á íslensku. Ekki flóknara en það.
Já, ég veit. Kokomo heitir eftir gömlu lagi um eyju í sól og sumri, en lundinn er auðvitað eins íslenskur og þeir gerast. Mér fannst það bara passa einhvern veginn, og þar við situr.
Ég heiti Lilja. Ég get gleymt mér yfir krossgátum, hef gaman af gömlum íslenskum orðum og hef alltaf haft þörf fyrir að búa eitthvað til. Þannig varð Kokomo til.
Mig langar að sem flestir geti notað vefinn. Þess vegna er bæði ljóst og dökkt þema, og sumir leikirnir eru með útgáfu fyrir litblinda. Ég held áfram að bæta í þetta, svo láttu mig vita ef það vantar eitthvað sem þú þarft.
Stór hluti af þessu er gerður með hjálp gervigreindar. Það er þægilegt þegar maður er einn að verki, en íslenskan verður stundum dálítið skrýtin fyrir vikið, svona eins og hún sé þýdd úr ensku. Ég laga það sem ég kem auga á þegar ég hef tíma. Sjáir þú eitthvað spaugilegt máttu endilega senda mér það.
Vefurinn er enn í mótun og sumt er hálfklárað, svo það má alveg búast við að eitthvað virki ekki alveg eins og það á að gera. Allar ábendingar eru vel þegnar, hvort sem það er villa, hugmynd eða eitthvað sem fór í taugarnar á þér. Sendu mér línu:
kokomo@kokomo.iseða kíktu á samskiptasíðuna.
Takk fyrir að kíkja ♥
Lilja og lundinn